Súr stemning hér þessa stundina. Verið að gera við niðri í kjallara, hávaði og vesen. Það er mygla í húsinu mínu og ég þarf að flytja, er að fara að skoða húsnæði um helgina. Þarf að vinna 800 verkefni í dag fyrir skólann, á vakt í vinnunni og þarf að spjalla við dönskukennarann eftir hádegi. Og svo er of mikið kaffi í kroppnum. Djö... Alltof mikið í gangi fyrir heilann minn

Svo þarf að pakka og þrífa og ganga frá. Helgin verður eitt heljarinnar vökufest til að koma mér framúr verkefnum fyrir skólann svo ég geti skoðað húsnæði og flutt án þess að farast úr stressi vegna skólans. Enginn plús í þessu, nema kannski verður nýja húsnæðið betra og laust við skordýrasveim..
Eriggi allirí stuði?



















