D.I.T.C. Crew (Diggin' in the Crates Crew)
Lord Finesse & DJ Mike Smooth - Funky Technician (1990)
http://www.megaupload.com/?d=TCNHLKOK
Mikill old school fílingur í þessari, flæðið hjá Lord Finesse er mjög hægt
og smooth og minnir mig talsvert á EPMD tvíeykið. Mikill funk fílingur í
bítunum eins og titillinn bendir til, en platan var pródúseruð að mestu af
DJ Premier. Lord Finesse er stofnandi og forsprakki D.I.T.C. krúsins, en
þessi plata var gefin út stuttu áður en krúið var stofnað.
Diamond D - Stunts, Blunts and Hip Hop (1992)
http://www.megaupload.com/?d=K5TW9JGQ
Þessi plata er mikið einstaklingsframtak Diamond D, en hann pródúseraði
öll lögin (sum sjálfur en önnur ásamt fleirum) og rappar á flestum laganna
þrátt fyrir að talsvert sé um gestarappara. Afskaplega hressandi plata, þrátt
fyrir að D sé ekki besti rappari í heimi þá sleppur þetta alveg hjá honum
og flest bítin á plötunni eru algjört gull (þess má geta að hann pródúseraði
4 lög af Lord Finesse plötunni hér fyrir ofan).
Þessi plata mun fá þig til að slamma hart.
Big L - Lifestylez of da Rich and Dangerous (1995)
http://www.mediafire.com/?twlnvhvvxmm
Big L er víst af mörgum talinn einn besti, ef ekki allra besti MC og
textasmiður allra tíma. Þetta var eina platan sem hann gaf út á meðan
hann lifði, en hann var skotinn til bana árið 1999. Platan er í fjölbreyttari
kantinum en nær þó að mynda sterka heild, sum lög eins og Put it On
eru hress og gamansöm street anthems á meðan önnur lög eins og
All Black eru virkilega hardcore og fjalla um upplífgandi hluti eins og
að myrða fólk (mætti jafnvel kalla þau horrorcore miðað við hvað bítin
og textasmíðarnar eru sinister og menacing). Meirihluti plötunnar er
pródúseraður af meðlimum D.I.T.C. krúsins, m.a. Lord Finesse, og öll bít
eru til fyrirmyndar. Fyrir þá sem ekki er sama, þá var þetta fyrsta platan
sem Jay-Z kom fram á, en hann er með vers í laginu Da Graveyard. Mæli
sterklega með þessari plötu, ef ekki bara fyrir flæðið og rímurnar hjá Big L,
sem margar hverjar eru bráðsniðugar og hnyttnar.